4.apríl 2022
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu, 2022
Aðalfundir deilda Stéttarfélagsins Samstöðu verða haldnir 11.og 12.apríl,í sal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi.
Stéttarfélagið Samstaða óskar eftir starfskrafi á skrifstofuna á Blönduósi.
Starfsheiti: Gjaldkeri / þjónustufulltrúi – 100% staða, um framtíðar starf er um að ræða. Vinnutími almennt frá kl. 9:00 -16:00. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf um miðjan maí eða eftir nánara samkomulagi.
30. mars 2022
Ályktun frá SGS – 30. mars 2022
Forkastanleg ummæli seðlabankastjóra
Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands furðar sig á ummælum seðlabankastjóra á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun, um að Hagvaxtaraukinn muni ekki koma sér vel. Launafólk um land allt sem fær, í samræmi við taxtahækkun kjarasamninga, 10.500 króna hækkun útborgaða 1. maí, á ekki skilið slíka sendingu frá seðlabankastjóra.