12.mars 2022.
Umsóknir um orlofshús 2022
Nú er komið að sumarúthlutun orlofshúsa 2022 og geta félagsmenn okkar sótt um vikudvöl á eftirfarandi stöðum: Illugastöðum, Einarsstöðum, Ölfusborgum og Jötnagarðsás við Munaðarnes.
26.febrúar 2022.
Stéttarfélagið Samstaða óskar eftir starfskrafi á skrifstofuna á Blönduósi.
Starfsheiti: Gjaldkeri / þjónustufulltrúi – 100% staða, um framtíðar starf er um að ræða. Vinnutími almennt frá kl. 9:00 -16:00. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf um mánaðamót mars/apríl eða eftir nánara samkomulagi.
24.febrúar 2022
Hvaða atriði vilt þú leggja áherslu á við gerð kjarasamninga?
Hér á forsíðusíðunni getur þú tekið þátt í könnun sem framkvæmd er af Vörðu-Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins og er ætluð félagsmönnum í Stéttarfélags Samstöðu. Markmið könnunarinnar er að kanna hvaða atriði félagsmenn vilja leggja áherslu á við gerð kjarasamninga sem verða lausir í haust.
Taktu þátt.