KVENNAVERKFALL Á BLÖNDUÓSI
50 árum eftir að baráttan fyrir jafnrétti hófst stöndum við enn frammi fyrir mörgum áskorunum. Tilkynningum um ofbeldi gegn konum og kvárum fjölgar ár frá ári, launamunur kynjanna helst óbreyttur og er enn til staðar. Þrátt fyrir framfarir sem gerðar hafa verið er jafnrétti alls ekki í augsýn. Það er því brýnt að við stöndum saman til að krefjast breytinga og framfara.

Við förum í Kvennaverkfall og hittumst til að minna á baráttusögu kvenna og kvára.

Og tökum höndum saman fyrir breytingar. Fyrir okkur, fyrir konur og kvár, fyrir framtíðina.

Með samstöðu fær ekkert okkur stöðvað!

Viðburður á Blönduósi
24. október kl. 13:30

Við hittumst á bílastæðinu hjá félagsheimilinu klukkan 13:30 og göngum saman þaðan. Við hvetjum öll til að mæta klædd í bleiku. Með því að klæðast bleiku sýnum við okkar stuðning og saman sendum við mikilvæg skilaboð um mikilvægi jafnréttis og heilsu kvenna og kvára.

Eftir gönguna standa dyr Stéttarfélagsins Samstöðu opnar fyrir okkur. Þar býður félagið upp á veitingar og sýnir fundi í beinni útsendingu. Samvera okkar og þátttaka skapa vettvang til að minna okkur á gildi samstöðu, styrks og von um betri framtíð.
Viltu vera með?

Ef þú hefur áhuga á að vera með erindi, flytja ræðu eða syngja, hafðu samband við Láru Dagný: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Allar konur, kvár og börn eru hjartanlega velkomin.