Breytt fyrirkomulag á íbúðum 

Ágætu félagsmenn.

Við viljum vekja athygli á breyttu fyrirkomulagi varðandi leigu á orlofsíbúðunum okkar. 

Vegna sölu á íbúðunum í Þangbakka 8 og Sóltúni 28 þá höfum við keypt tvær aðrar orlofsíbúðir í Reykjavík og eru þær báðar staðsettar í Sóltúni 30. Frá og með 1. nóvember 2025 verður hægt að leigja þær.

Sóltún 30, íbúð 306 - leigist út frá föstudegi til mánudags, mánudegi til miðvikudags og frá miðvikudegi til föstudags.

Sóltún 30, íbúð 204 - leigist yfir helgi – frá föstudegi til mánudags og svo sólarhringsleiga.

Ekki er hægt að leigja fleiri en 7 nætur yfir 3ja mánaða tímabil. 

Tímabilin eru:

Janúar - mars,   apríl - júní,  júlí - september,  október - desember.

Jól, áramót og páskar verða leigð sérstaklega og ekki skiptidagar á rauðum dögum.

Verðskrá: 

Sólarhringsleiga – 10.000 kr. 

Helgarleiga – (3 nætur, fös-mán) – 25.000 kr.

2 nætur – 20.000 kr.

Stéttarfélagið Samstaða