7.feb

Kjarasamningurinn

 Í dag var undirritaður nýr kjarasamningur milli SSÍ og SFS. Eins og fram kemur í fréttatilkynningu hér að framan er samningurinn byggður á samningnum sem felldur var í fyrra en í þessum samningi er tekið tillit til helstu atriða sem voru gagnrýnd í þeim samningi.

Kynningu á helstu atriðum samningsins og þeim breytingum sem gerðar voru má sjá sjá hér.

Samninginn í heild sinni má nálgast hér.
 7.feb
Nýr kjarasamningur sjómanna undirritaður

Nýr kjarasamningur á milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) var undirritaður í dag í húsnæði Ríkissáttasemjara. Samningar á milli aðila hafa verið lausir frá árinu 2019. Árið 2023 var nýr kjarasamningur felldur í atkvæðagreiðslu sjómanna.
Samningaviðræður um nýjan samning hafa staðið yfir síðustu mánuði. Í þeim viðræðum var lögð mikil áhersla á að taka tillit til þeirra athugasemda og gagnrýni sem fram kom í umræðum um samninginn á síðasta ári og hefur það gengið eftir í helstu atriðum.

 
Kæru félagsmenn.
Hér eru námskeiðin sem eru í boði hjá Farskólanum á Norðurlandi vestra vorið 2024.
Skráningar á námskeiðið eru á www.farskolinn.is