Samningar undirritaðir.
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði.
Helstu atriði nýs kjarasamnings
- Kjarasamningarnir gilda frá 1. apríl 2019 – 1. nóvember 2022
 - Krónutöluhækkanir – 17 þúsund kr. hækkun á öll mánaðarlaun 1. apríl 2019
 - Lægstu laun hækka mest – 30% hækkun á lægstu taxta
 - Aukið vinnustaðalýðræði með möguleika á verulegri styttingu vinnutímans (mestu breytingar í tæpa hálfa öld)
 - Eingreiðsla upp á 26 þúsund kr. sem kemur til útborgunar í byrjun maí 2019
 - Skilyrði sköpuð fyrir verulegri vaxtalækkun á samningstímanum
 - Skattbyrði hinna tekjulægstu lækkar um 10 þúsund kr. á mánuði
 
Almenn hækkun á mánaðarlaun fyrir fullt starf
- 1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
 - 1. apríl 2020 18.000 kr.
 - 1. janúar 2021 15.750 kr.
 - 1. janúar 2022 17.250 kr.
 
Kauptaxtar hækka sérstaklega
- 1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
 - 1. apríl 2020 24.000 kr.
 - 1. janúar 2021 24.000 kr.
 - 1. janúar 2022 25.000 kr.
 
Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmda launaauki að gefinni ákveðinnar þróunar á vergri landsframleiðslu á hvern íbúa.
Tenging við hagvöxt (hagvaxtarauki) tryggir launafólki hlutdeild í verðmætasköpuninni. Þetta ákvæði nýtist best þeim tekjulægri þar sem þessi hækkun fer af fullum þunga á taxtakaup og ¾ á önnur laun. Hagvaxtarauki getur hækkað taxtalaun um 3-13 þúsund á ári eftir því hvað verg landsframleiðsla á mann hækkar mikið á tímabilinu.
2,5% hækkun á aðra liði kjarasamninganna eins og bónusa 2020-2022.
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf
- 1. apríl 2019 317.000 kr. á mánuði
 - 1. apríl 2020 335.000 kr.
 - 1. janúar 2021 351.000 kr.
 - 1. janúar 2022 368.000 kr
 
Desemberuppót (var 89.000 kr. 2018)
- 2019 92.000 kr.
 - 2020 94.000 kr.
 - 2021 96.000 kr.
 - 2022 98.000 kr.
 
Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018)
- Maí 2019 50.000 kr.
 - Maí 2020 51.000 kr.
 - Maí 2021 52.000 kr.
 - Maí 2022 53.000 kr.
 
Eingreiðslan kemur sem sérstakt álag á orlofsuppbót árið 2019 uppá 26.000 kr. sem greiðist eigi síðar en 2. maí 2019.
Forsendur kjarasamninganna eru eftirfarandi:
- Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu skv. launavísitölu Hagstofu Íslands.
 - Vaxtir lækki verulega fram að endurskoðun samnings í september 2020 og haldist lágir út samningstímann.
 - Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit skv. yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna.
 
Forsendur kjarasamninga verða metnar í september 2020 og september 2021. Forsendurnefnd verður skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila.
