20. apríl 2020
Ný og spennandi námskeið á næstunni
Á næstu vikum mun Farskólinn bjóða upp á spennandi og skemmtileg vefnámskeið
sem greidd eru að fullu fyrir félagsmenn sem eiga aðild að Landsmennt,
Sveitamennt, Ríkismennt og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks.
Námskeiðin eru:
• Jákvæð andleg orka á tímum óvissu – 22.apríl
• Ræktaðu þitt eigið grænmeti – 28. apríl
• Samskipti í samkomubanni – 29. apríl
• Kvíði barna og unglinga á tímum Covid – 5. maí
• Er heimili þitt griðastaður eða óyfirstíganlegt verkefni? – 6. og 13. maí
Nú er kjörið tækifæri til að nýta ástandið í þjóðfélaginu, sækja sér meiri þekkingu og auka hæfni sína.
Skráning fer fram hjá Farskólanum í síma 455 6010 eða á heimasíðu Farskólans