Stéttarfélagið Samstaða óskar eftir starfskrafi á skrifstofuna á Blönduósi.
Starfsheiti: Gjaldkeri / þjónustufulltrúi – 100% staða, um framtíðar starf er um að ræða. Vinnutími almennt frá kl. 9:00 -16:00. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf um miðjan maí eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið felst í:
- Dagleg fjármálaumsjón á skrifstofu Samstöðu.
- Almenn skrifstofustörf, símasvörun og afgreiðsla viðskiptavina.
- Þjónusta og samskipti við félagsmenn, m.a. túlkun kjarasamninga.
Nánari upplýsingar veitir Stefanía A. Garðarsdóttir, gjaldkeri í síma 4524932 og Guðmundur Finnbogason, formaður ( 8613894 ).
Laun samkvæmt kjarasamningi LÍV.
Umsóknum skal skilað inn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudag 20.apríl 2022.