26.febrúar 2022.
Stéttarfélagið Samstaða óskar eftir starfskrafi á skrifstofuna á Blönduósi.
Starfsheiti: Gjaldkeri / þjónustufulltrúi – 100% staða, um framtíðar starf er um að ræða. Vinnutími almennt frá kl. 9:00 -16:00. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf um mánaðamót mars/apríl eða eftir nánara samkomulagi.
Almennt ábyrgðarsvið:
- Dagleg fjármálaumsjón á skrifstofu Samstöðu.
- Þjónusta og samskipti við félagsmenn, m.a. túlkun kjarasamninga.
Helstu verkefni:
- Almenn skrifstofustörf, símasvörun og afgreiðsla viðskiptavina.
- Móttaka, flokkun, greiðsla reikninga, frágangur til bókara.
- Innkaup fyrir kaffistofu og fundi.
- Sjá um útreikninga á sjúkra- og starfsmenntsjóðum.
- Undirbúningur gagna til launakeyrslu.
- Eftirlit / vöktun með rafrænum tilkynningum og netfanga
- Auk þess annast starfsmaður önnur störf sem yfirmaður kann að útdeila og falla innan eðlilegs starfssviðs gjaldkera / þjónustufulltrúa.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Frumkvæði, skipulagning og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð kunnátta í ensku og íslensku
- Þekking á bókhaldi og fjármálum
- Góð þekking á upplýsingatækni
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veitir Stefanía A. Garðarsdóttir, gjaldkeri í síma 4524932 og Guðmundur Finnbogason, formaður ( 8613894 ).
Laun samkvæmt kjarasamningi LÍV.
Umsóknum skal skilað inn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 14. mars 2022.