sgs.m 

19. DESEMBER 2022

Nýr kjarasamningur samþykktur hjá 17 aðildarfélögum SGS

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á hinum almenna vinnumarkaði liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 17 aðildarfélögum sem eiga aðild að honum.

Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 9. til 19. desember. Í heildina var kjörsókn 16,56%, já sögðu 85,71% en nei sögðu 11%. 3,29% tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 23.711 manns.

Niðurstöður atkvæðagreiðslu (PDF)

Niðurstöðurnar voru afgerandi í öllum félögunum, en í 15 af 17 félögum var samningurinn samþykktur með yfir 80% atkvæða.

Samningurinn, sem undirritaður var 3. desember síðastliðinn, telst því samþykktur hjá eftirfarandi félögum: AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífanda stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vesturlands, Stéttarfélaginu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélaginu Hlíf.