Drífa Snædal föstudagspistillReykjavík, 11. febrúar 2022

2007... taka tvö?

Á meðan hitastigið vegna stjórnarkjörs Eflingar hækkar og ásakanir og gífuryrði ganga á víxl tilkynnir Seðlabankinn um vaxtahækkun sem mun rýra kjör skuldsettra heimila. Bankar skila gríðarlegum hagnaði en sá hagnaður skilar sér ekki til samneyslunnar nema í gegnum eignarhlut ríkisins á Landsbankanum.

Skemmst er að minnast þess að bankaskattur var lækkaður tilfinnanlega og svo afnuminn alfarið í COVID-faraldrinum því hann þótti svo íþyngjandi fyrir bankana. Einhverjir héldu jafnvel að skattfrelsi bankana myndi skila sér til viðskiptavina þeirra, en því hefur sannarlega farið fjarri, eins og bæði vaxtamunurinn og þjónustugjöld segja til um. Afkomutölur bankanna sýna hversu mikil mistök þetta voru fyrir almenning, en auðvitað gott fyrir hluthafana og hina fáu sem fá nú meira í vasann.

Það eru stef í samfélaginu sem minna óneitanlega á aðdraganda hrunsins; bankasala og ofurbónusar og í viðskiptafréttum má lesa um áhyggjur af því að að fyrirtæki erlendis séu að bera víurnar í okkar afburða viðskiptasnillinga og því þurfi þeir hærri laun og meiri bónusa. Á sama tíma hefur launafólk þessara sömu fyrirtækja tekið á sig óvissu, álag og í einhverjum tilvikum kjaraskerðingar í gegnum lækkað starfshlutfall eða vegna uppsagna og endurráðninga á lakari kjörum.

Önnur kunnugleg stef frá því fyrir hrun eru hugmyndir um að láta fjármagnseigendur í auknum mæli stýra velferðarþjónustu, nú heitir þetta: „Það skiptir ekki máli hver veitir þjónustuna“. Jú það skiptir máli og við vitum afleiðingarnar af því að fjármagnseigendur eigi að sinna grunnþörfum. Húsnæðismarkaðurinn er gott dæmi þar sem hann hefur of lengi verið leikvöllur fjármagnsins og étið upp launahækkanir þeirra sem eru í viðkvæmustu stöðunni. Vegna niðurrifs heilbrigðisþjónustunnar er fólk sem hefur fjárráð farið að greiða himinháar upphæðir til að sækja sér heilbrigðisþjónustu. Heilsa, lífslíkur og velferð eru sífellt meira tengd stétt og fjárhag og eftir því sem markaðurinn fær meiru ráðið um grunnþjónustuna verður gjáin dýpri.

Blikur eru á lofti um aðbúnað, kjör og lífsgæði fólks. Kjarasamningar eru lausir í haust en fyrir þann tíma þarf að grípa þau heimili sem eru í mestum vanda, hafa ekki notið kjarabóta eða þurft að taka á sig stóraukin útgjöld. Verkalýðshreyfingin er sterkasti málsvari vinnandi fólks og alls almennings. Félagar í stéttarfélögum eiga heimtingu á þau sem eru kjörin til verka að við beitum baráttuafli okkar þar sem þess er þörf en ekki hvert gegn öðru. Stærstu sigrarnir og mestu lífsgæðin koma með samstilltri hreyfingu.

Góða helgi, 

Drífa