sgs.m

Greitt úr Félagsmannasjóði SGS

Félagsmenn aðildarfélaga SGS sem starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð SGS. Í dag, 1. febrúar 2021, verður greitt úr sjóðnum í fyrsta skipti.

Þeim félagsmönnum sem komið hafa nauðsynlegum upplýsingum á framfæri við sitt stéttarfélag eða SGS,og launagreiðandi skilað framlögum munu berast greiðslur í dag. 

Berist ekki greiðslur er viðkomandi bent á að hafa samband við SGS með tölvupósti á netfangiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..Miðað er við að greiða aftur úr sjóðnum 1. mars næstkomandi.